Föstudagur og kominn tími á smá blogg
Þetta ætlar ekki að ganga hjá mér að blogga nokkuð reglulega..... Ég ætla nú að reyna samt áfram og sjá hvað setur
Það er aldrei að vita nema ég vaxi aðeins í bloggdugnaðinum
Ég reyndi að vísu að blogga fyrir örfáum dögum og það ætlaði bara alls ekki að hafast að vista færsluna og á endanum gafst ég bara upp ! Þannig að nú verður reynt að blogga á
annagisla.blog.is
Sjáumst þar ef áhugi er á ........
Posted at 21:33 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Það er búið að vera nóg að gera í dag. Fyrst af öllu var auðvitað að koma Kristjáni Atla í skólann og svo um klukkan 10 fórum við Halla af stað niður í bæ því við áttum tíma í vigtun með Höllu. Haldiði að daman sé ekki orðin 4.735 grömm og hefur því bætt við sig 110 grömmum á s.l. viku
Ekki slæmur árangur það
Við Halla vorum að klára hjá hjúkkunni þegar Óli kom og tók við Höllu því ég þurfti að fara á tvo fundi í dag.
Fyrri fundurinn niður í ráðhúsi með Birni Inga Hrafnssyni. Erindi þess fundar var aðallega að krefjast svara fyrir það hvers vegna fötluðum börnum í Reykjavík er mismunað eftir því hvort þau eru í sérskóla eða í almennum skóla / sérdeild. Krakkar sem ganga í sérskóla, t.d. Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla hafa möguleika á skóladagheimili (lengdri viðveru) alveg upp í 10. bekk en í almennu skólunum og sérdeildum er það einungis upp í 4. bekk. Þ.a.l. eru báðir strákarnir mínir orðnir of gamlir og eiga þess vegna ekki kost á þessum tilboðum.
Seinni fundurinn var á Svæðisskrifstofunni. Bara þessi venjulegi samráðsfundur sem haldinn er c.a. einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Á þessa fundi mætir 1 fulltrúi frá Hólabergi (skammtímavistun), 1 frá skólanum, 1 frá svæðisskrifstofu, 1 ráðgjafi og svo við foreldrarnir. Þetta var fyrsti fundur vetrarins. Við fórum vel yfir byrjunina á skólanum og svona hvernig drengirnir hafa "komið undan sumri" og voru allir sammála um það að þeir hafa staðið sig alveg ótrúlega vel og gengið vel með þá þrátt fyrir frekar erfitt og skrítið sumar
Þetta eru líka alveg ótrúlega flottir strákar sem ég á 
Posted at 22:17 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál
Já haldiði að bíósjúklingurin (not) ég hafi ekki farið ásamt honum Óla mínum í bíó í gærkvöldi
Við fórum að sjá "Þetta er ekkert mál". Allt í senn ofsalega fróðleg, skemmtileg og sorgleg mynd.
Það er nú ekki fyndið hvað maður fer sjaldan í bíó ..... ég fer svona einu sinni á tveggja ára fresti
Ekki nokkur frammistaða. Reyndar er sjónvarpsglápið hjá manni alveg í stíl við bíóferðirnar. Ekki fyrir svo löngu síðan fengum við Óli lánaða DVD mynd hjá Sævari. Þegar hulstrið var búið að vera óopnað uppi í hillu og við ekki búin að koma okkur í að horfa á myndina í svona rúman mánuð var myndinni skilað 
well ég verð að blogga meira seinna því framundan er vigtun á henni Höllu minni og svo tveir fundir. Annar með Birni Inga Hrafnssyni og svo fyrsti samráðsfundur vetrarins vegna strákanna minna ...
Over and out
Posted at 10:24 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Nú er komið að einni tilrauninni enn að blogga svolítið. Það er nú svo sem ekki mikið frá að segja nema lífið gengur áfram sinn vanagang. Vandamálið við að næra Höllu litlu er úr sögunni er sú stutta farin að hvolfa í sig mjólkinni og verða nokkurnveginn eins og venjulegt barn
Já og líkjast hinum í fjölskyldunum sínum aðeins meira .....
Núna er minnsti stóri strákurinn minn kominn í skóla ! Mér finnst hann hafa bara verið að fæðast í fyrradag (og Halla þá í gær ....) Þetta gengur allt alveg rosalega vel hjá honum enda er Rimaskóli að standa sig alveg frábærlega (að mínu mati) við að taka á móti svona gaur eins og Sigurjóni.
Fyrir helgina fékk Sigurjón að prófa að labba einn í skólann í fyrsta skipti og gekk það bara alveg mjög vel og strákurinn alveg að rifna úr stolti að fara þetta sjálfur
Enda var honum vandlega hrósað fyrir að fara beina leið og vera fljótur á leiðinni. Í dag fékk hann svo að prófa að labba einn heim og það var eins og við manninn mælt, hann fór beina leið heim eins og stillum strák sæmir
Tíminn líður alveg ofsalega hratt ..... Það er ég viss um að Halla verður komin í skóla áður en ég veit af .......
Stærstu stóru strákarnir mínir eru líka að standa sig alveg stórvel í skólanum. Kristján Atli fór í síðustu viku með bekknum sínum norður í Reykjaskóla í 3 daga æfintýradvöl þar. Bekkurinn hans var frá mánudegi til föstudags en Kristján var frá mánudegi til fimmtudags því stuðningurinn sem hann fékk með sér gat ekki verið lengur.
Sigtryggur Einar er búinn að vera að gera góða hluti í skólanum sem og annarsstaðar. Hérna heima er nýjasta æðið hjá honum að fara út að hjóla. Svo þegar hann nennir ekki að hjóla meira fer hann og fylgist með hundum nágrannans og fær stundum að fara með þegar farið er út með þá að ganga.
Jæja vonandi verður þetta til þess að ég komist almennilega í gang við að blogga .....
Við sjáum hvað setur .....
Posted at 21:06 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Ég er búin að fá nóg af þér og þínu tilfinningalega harðlífi !
Hann sonur minn hann Sigurjón er alveg ótrúlegur
Við vorum að fara að horfa á "kvöldmyndina" saman og ég var að reyna að stilla helv.... draslið þannig að hlóðið í myndinni kæmi úr hátölurunum ....
Svona drasl er ekki mín sterkasta hlið verð ég að viðurkenna þannig að þar sem Óli var upptekinn við að sinna Höllu litlu og gat ekki hjálpað mér var myndin sett af stað með hljóðið "bara" úr sjónvarpinu sjálfu. Ég og strákarnir smelltum okkur í að horfa á Tarzan
Uppáhaldssetningin mín í allri þeirri teiknimyndaflóru sem til er á mínu heimili er örugglega þessi: "Ég er búin að fá nóg af þér og þínu tilfinningalega harðlífi !" En þetta er setning úr einu lokaatriðinu í Tarzan
Nema hvað .... þegar myndin er ca. hálfnuð þá þurfti ég aðeins að standa upp og bregða mér frá. Þegar ég kom til baka sagði hann mér að hann "væri búinn að laga video4" .... og ég var ekki alveg að skilja hann þannig að ég sagði honum að sýna mér ...... Viti menn ! Litli takkaóði skrattinn minn var búinn að finna út úr þessu með &/()/&)%&%(=(Ö/(=& hlóðið í sjónvarpinu !
Posted at 22:13 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Það fer að líða að því ......
að ég fari að blogga aftur .....

Varð bara að setja þessa mynd inn ..... Mér finnst hún svo endalaust flott 
Posted at 00:31 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Ó mæ god það er orðinn mánuður síðan að ég bloggaði síðast ! Ég held svei mér þá að bloggletikast hjá mér hafi aldrei enst jafn lengi og í þetta sinn
Það hefur svo sem ekki mikið á daga mína drifið undanfarið. Það sem helst hefur verið um að vera hef ég bloggað um á síðunni hennar Höllu Katrínu.
Strákarnir mínir eru allir búnir að vera hjá pabba sínum og ömmu undanfarna daga. Fyrst fóru þeir í vikudvöl með ömmu sinni og Önnu systur hennar vestur í Stykkishólm. Þar voru þeir í góðu yfirlæti og brölluðu margt skemmtilegt. Amman var auðvitað með myndavél meðferðis og myndirnar má sjá hérna pabba.strakar.net Þeir skemmtu sér konunglega, fóru í sund, heitan pott í bústaðnum, að veiða, dorga við bryggju, sjóferð og margt fleira skemmtilegt
Komu svo heim til pabba síns kaffibrúnir og sælir
Á meðan að dvölinni í Hólminum stóð átti Sigtryggur Einar 10 ára afmæli. Hann fékk auðvitað nokkra pakka á afmælisdaginn og afmælisveislu og svo þegar heim kom þá fórum við Óli og Halla Katrín í heimsókn til þeirra feðga og héldum smá auka afmælisveislu
Í þessari viku eru strákarnir búnir að vera heima hjá pabba sínum og á leikjanámskeiðinu. Á föstudaginn fara þeir svo feðgar í sumarbústað við Apavatn og verða þar í viku.
Unginn minn hún Halla kallar ....
meira síðar
Posted at 16:49 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Ær og kýr og ýmislegt fleira :)
Posted at 00:31 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Já það hlaut að koma að því að ég gæfi mér tíma til að blogga obbolítið. Það er ekki svo að það sé mikið að frétta af mér, ég er bara heima og hitti ekki mikið að fólki en svolítið þó .....
Eins og kannski flestir eru búnir að frétta þá kom Halla Katrín litla heim s.l. föstudag
Mikið svakalega voru synir mínir fegnir ..... Kristján Atli sagði við mig núna einn daginn eftir að hún kom heim: "mamma, nú þarftu ekkert að flýta þér ....." Annars verð ég eiginlega að segja að stóru strákarnir mínir þeir Kristján Atli og Sigtryggur Einar hafa staðið sig alveg ótrúlega vel í gegnum þennan tíma sem Halla litla var á vökudeildinni og við sinntum henni þar og þeim hérna heima. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að þeir yrðu svona góðir og þolinmóðir við okkur. Þeir eru ótrúlega duglegir strákar
Daginn sem að Halla kom heim fóru þeir í helgardvöl til pabba síns og Sigurjón Stefán kom til okkar Óla. Þeir stóru voru eiginlega svolítið svekktir þegar þeir sáu að þetta rækist svona saman og þær gætu ekki verið hjá litlu systir fyrstu dagana heima.
Ég útskýrði fyrir þeim að hún yrði sko ennþá hjá okkur þegar þeir kæmu aftur heim og svo fengu þeir nýjan DVD disk í sárabætur
Nýja diskinn, Litli kjúlli 
Í síðustu viku brá ég mér út í Hagkaup með Kristján Atla með mér í þeim erindagjörðum að kaupa strigaskó á drenginn. Úrvalið í "okkar Hagkaup" í Spönginni er nú ekki gott en á endanum fundum við skó sem vert var að máta og drengurinn byrjaði að máta ....... Endirinn var sá að ég labbaði út með skó númer 42 á 12 ára gamlan son minn !!!! Hvar endar þetta eiginlega ?!?!?! 
Lengra verður þetta ekki þetta sinn ..... Over and out
Posted at 21:25 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins
Þetta er fengið "að láni" á bloggsíðu hjá kunningjakonu minni
- Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki í bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
- Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
- Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
- Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
- Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.
- Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
- Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
- Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.
- Virka efnið í kók er phosphoric acid.
- Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
- Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem flytja ætandi efni
- Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.
Jahérna hér..þetta er viðbjóður, samt drekkur maður þetta ógeð...
Langar þér núna í ískalt Coca-Cola??

Posted at 10:41 by annagisla
Full slóð á blogg dagsins